|
Land og Synir
Herbergi 313 |
Útgefandi: |
SPOR |
Verð: 2.199,- |
Flokkur: |
CD ÍSL. |
Bónusklúbbsverð: 1.693,-
|
Vörunúmer:
|
SPOR193
|
|
|
Lagalisti:
Um plötuna:
Fyrsta plata Lands og Sona sem kom út í fyrra hefur nú selst í á sjöunda þúsund eintaka og eru þeir án efa ein vinsælasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Platan er afskaplega vönduð og metnaðarfull í alla staði en hún var hljóðrituð á tímabilinu frá mars til september á þessu ári. Hljóðblöndun fór fram í Puk Studios í Danmörku. Platan inniheldur m.a. stórsmellina Lending 407 og Allt á hreinu ásamt 9 öðrum nýjum lögum.
|
Umsagnir
Sigurdur Hallvardsson |
|
Frábær cd, æðislegur cd, cool cd. (2.11.1999) |
Ragnheiður Gunnarsdóttir |
|
Þeir eru bara með eitt gott lag á þessum disk og er það lagið Saga. (5.12.1999) |
Heiða Björk Ingvarsdóttir |
|
Þetta er alveg frábær plata. Öll lögin eru æðisleg. Þetta er plata sem allir verða að eiga. Fullt hús af stjörnum!! (5.1.2000) |
Auður Stefánsdóttir |
|
Þessi plata er hrein snilld! Fyrri plata Lands & Sona "Alveg eins og þú" er frábær en þessi er jafnvel enn betri. Það eru gerðar miklar tilraunir á plötunni með hljóma og útkoman er ótrúlega flottir, sérkennilegir hljómar sem eru engu öðru líkir. Það er ekkert lag sem dregur plötuna niður og því er erfitt að gera upp á milli laganna, en þó má nefna lög eins og Freistingar, Saga, Fordómar og Örmagna sem standa upp úr. Svo eru þarna stuðlög eins og Lending 407 sem er frábært stuðlag með þungum, mjög vönduðum texta og Allt á hreinu, rokkað mjög vel heppnað lag. Það ætti enginn að láta þessa plötu fram hjá sér fara, ég mæli eindregið með henni. (10.1.2000) |
|
|