Önnur breiđskífa strákanna í Sigur Rós og ţađ engin smá plata. Gagnrýnendur hafa keppst um ađ lofa ţetta meistaraverk og sagt ađ önnur eins plata hafi ekki komiđ út á Íslandi í árarađir. Seiđandi tónar og einstakur söngur sem fólk verđur hreinlega ađ upplifa til ađ skilja. "Međ samning á himnum" 5 stjörnur, Gunnar Hjálmarsson - Fókus. (Skrifađ 16. desember 1999).
Sú kynslóđ tónlistarmanna sem hefur veriđ ráđandi á ţessum áratug í frumlegri tónlistarsköpun hefur fengiđ sinn heilaga kaleik í formi ofangreinds meistaraverks Sigur Rósar. Ágćtis Byrjun inniheldur einfaldlega fallegustu tónlist sem ég hef heyrt í mörg ár. Ţađ skín sterkt í gegn á plötunni ađ ţađ er tónlistin sem skiptir Sigur Rósar-menn máli fyrst og síđast, einlćgnin smýgur beint í hjarta hlustandans. Lögin hljóma líkt og ţau hafi veriđ samin í himnaríki. Ţađ hefur aldrei komiđ fyrir mig ađ hafa fellt tár yfir ţremur mismunandi lögum á sömu plötunni og hún minnir mig rćkilega á hvers vegna tónlistin sem slík er mér allt. Ég efast um ađ ţessir piltar geri sér grein fyrir ţví hverju ţeir hafa áorkađ. Manni fallast hendur viđ ađ hlusta á ţessa plötu og orđ í tölvu komast ekki nálćgt ţví ađ lýsa ţessu. Hér skiptir umrćđa um tónlistarstefnu, upptökutćkni eđa eitthvađ álíka engu einasta máli. Máliđ eru tónarnir og hljómarnir sem eru ţarna og er ekki feilnóta á ferli. Allt er á sínum stađ, engu ofaukiđ. Plata ţessi nálgast nćr fullkomnun í sinni hreinu mynd. Ţegar lagiđ Viđrar vel til loftárása nćr hápunkti sínum finnst manni eins og mađur sé dáinn og farinn til himna og titillag plötunnar er lagiđ sem hljómar á enda veraldar. Lagiđ Starálfur ER fallegt. Ţađ ţjónar litlum tilgangi ađ vera ađ rökrćđa ţetta eitthvađ. Ţetta er borđliggjandi fyrir ţá sem leggja eyrun viđ. Tímalaust snilldarverk og hiklaust besta íslenska plata sem komiđ hefur út á ţessum áratug. (25.10.1999)
Bárđur Örn Bárđarson
Ein flottasta plata ársins. Frábćr byrjun hjá sveitinni. (10.10.1999)