|
Bubbi
Sögur 1980-1990 |
Útgefandi: |
Íslenskir tónar |
Verð: 2.999,- |
Flokkur: |
CD ÍSL. |
|
Vörunúmer:
|
IT002
|
|
|
Lagalisti, plata 1:
Lagalisti, plata 2:
Lagalisti, plata 3:
Um plötuna:
Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá útgáfu hljómplötunnar Ísbjarnarblús sem er og 20 ára afmæli Bubba Morthens sem tónlistarmanns.
Af því tilefni hafa Íslenskir tónar, sem er endurútgáfumerki Skífunnar ehf, ákveðið að draga saman öll helstu lög Bubba í útgáfur sem munu líta dagsins ljós á næstu misserum.
Í fyrstu lotu kemur út safn áratugarins 1980-1990 undir heitinu "Sögur 1980-1990". Þessi útgáfa samanstendur af 34 lögum á tveimur geislaplötum, þar af þremur sem hafa ekki komið út áður á geislaplötu. Má þar nefna lagið "Skapar fegurðin hamingjuna" sem naut gífurlegra vinsælda hér um árið.
Á plötunni eru einnig fjögur lög sem ekki hafa verið gefin út áður "1. maí í Malaga" sem margir aðdáendur Bubba hafa beðið eftir með mikilli óþreyju, lag Sigfúsar Halldórssonar "Vegir liggja til allra átta" sem tekið var upp 1987, "Spánskur dúett í Breiðholti" sem átti að fara á plötuna Ísbjarnarblús en varð að víkja þá vegna plássleysis og að lokum "Elliheimilið Grund" sem var hljóðritað í Norræna húsinu 1979 á fyrstu eiginlegu tónleikum Bubba.
Öll lögin á þessum plötum eru endurhljómjöfnuð eða "masteruð" á ný. Vegleg textabók fylgir með enda verður Bubbi Morthens að teljast eitt af okkar helstu texta og ljóðskáldum.
Með þessari tvöföldu safnplötu fylgir svo aukaplata sem á eru 5 lög sem Bubbi tók upp fyrr á þessu ári. Þar nýtur hann aðstoðar nokkurra af helstu tónlistarmönnum rokkgeirans, m.a. meðlima úr hljómsveitunum Ensími og Botnleðju.
|
Umsagnir
Arnar Arinbjarnarson |
|
Tvímælalaust langbestu kaup sem hægt er að gera í tónlist! Nýju lögin sýna það og sanna að Bubbi er besti laga og textahöfundur landsins og enn betri rokkari! Þessi nýju lög eru þyngri, eða allavega jafn þung og lögin með Utangarðsmönnum og Egó. Bubbi: Til hamingju með nýju plötuna, hún er ROSALEG!!! (28.10.1999) |
Birgir Pétursson |
|
Snilld, Prinsinn er Prinsinn en Bubbi er og verður alltaf kóngurinn. (26.10.1999) |
|
|