Það er greinilegt að Radiohead eru sífellt á uppleið í tónlistarheiminum, því alltaf verða þeir betri og betri með tímanum. Kid A er mjög "Radiohead-leg" plata, en samt ekkert líkt þeim á vissan hátt. Það er lögð meiri áhersla á önnur hljóðfæri en gítarinn, sem er þveröfugt við fyrri plötur. Þeir hafa eitthvað smitast af Aphex Twin og er greinilega hægt að heyra það í laginu "Idioteque" sem er að mínu mati eitt af bestu lögum plötunnar. Lagið "Treefingers" er mjög gott fyrir svefninn, en það er algjörlega instrumental og mjög ólíkt þeim. Öll lögin eru hrein snilld og þá sérstaklega: "Morning Bell" og "How to Disappear". Kid A er algjört MUST fyrir alla Radiohead aðdáendur og þá sem fíla Radiohead. Að mínu mati er þetta BESTA plata sem Radiohead hefur gefin út hingað til. -Björgvin- (20.9.2000)
Daniel freyr Sigurðsson
Það er ótrúlegt hvað Radiohead hefur breyst síðan OK Computer. Fyrst þegar ég ætlaði að hlusta á diskinn var ég eiginlega fyrir vonbrigðum. En síðan þegar ég hlustaði betur á hann er þessi diskur alveg frábær. Nú er ekki gítarinn bara að gera músíkina heldur hinn hljóðfærinn koma líka til sögu. Lögin hafa miklu meiri kraft en áður. (9.10.2000)