Íris Hildur Eriksdóttir |
|
Þessi geisladiskur er sá besti sem ég hef heyrt. Ef þú átt hann ekki og ef þú fílar rapp, keyptu þá diskinn núna vertu ekkert að hugsa þig um. (1.8.2000) |
Jóhannes |
|
Þetta er mun betri diskur en hinn og er að mínu mati ekki góður, það er að segja eru lögin ekki góð, en allt vel rappað. T.d. þetta Slim Shady lag sem ég fékk leið á þegar ég hlustaði á það 2svar. Eminem er án efa besti hvíti rappari sem hefur heyrst í. Margir frægir rapparar eru gestir á þessum disk t.d. Snoop Dogg. Ég get hiklaust mælt með þessum. (9.6.2000) |
Dagný Ósk Aradóttir |
|
Þessi diskur er miklu betri en fyrri diskurinn hans. Hann er fullur af góðum lögum t.d. Stan, sem er að mínu mati besta lag disksins. Svo koma fram á honum margir þekktir rapparar t.d. Dr. Dre, Snoop Doggy Dog og fleiri. Eminem er að gera virkilega góða hluti, kaupið endilega plötuna!!! (10.8.2000) |
Páll Þór Pálsson |
|
Annað meistaraverk Eminem´s, Marshall Mathers LP, er loksins komið út. Frábær diskur sem sannar að að þú þarft ekki að vera svartur til að geta rappað! Inniheldur snilldarlög eins og Marshall Mathers, Amityville, Kim, Under The Influence og Criminal. Mun þyngri diskur en Slim Shady Lp en það er bara skref í rétta átt. Textarnir eru hrein snilld og erfitt eða vonlaust er að gera betur en hann þegar þarf að bögga einhvern! Hlaupið út í búð og verslið eitt stykki strax.. eða tvö og skellið honum í tækið..5 stjörnur. Einnig bendi ég rapp-aðdáendum á að fylgjast vel með D-12, Detroit Crewinu sem Eminem ætlar að gera plötu með.... (29.5.2000) |
Karólína Hansen |
|
Þetta er frábær plata með ýkt góðum lögum eins og Stan og The Real Slim Shady og ég mæli með henni. (17.8.2000) |
Ingi Valur Davíðsson |
|
Þetta verður besti diskurinn sem hefur komið út með Eminem. Marshall Mathers LP inniheldur hið frábæra lag Kim og einnig lagið Our House. (7.5.2000) |
Guðni Baldur Gíslason |
|
Ok, þetta er langbesti diskur sem ég hef heyrt lengi. Hann er klikkaður að öllu leiti, vel mixaður og vel rappaður, og þið sem fýlið þetta, kaupið þennan strax. (18.8.2000) |
Hr. SLIPKNOT |
|
Er ég fékk þennan disk fyrst sendann frá USA þá var hann ekki kominn hingað. En ég hef verið Eminem fan síðan hann "byrjaði". Einnig áður enn Dr. Dre fann hann. Þessi diskur er svo góður að..........ohh kaupið ykkur hann bara NÚNA!!!!! (23.7.2000) |
Þorsteinn Kristinn Sefánsson |
|
Plötur með Björgvin Halldórs, þær eru bestar í mínum huga. (13.9.2000) |