01. Lagður hjá rúmi Casju Lísu síðla kvöld eitt 02. Sem prúðbúin hjarðmey 03. Fyrst ég annars hjarta hræri 04. Sjá bróðir Móvítz 05. Öldungnum hnignar 06. Svo endar hver sitt ævisvall 07. Gamli Nói
08. Ansa mér móðir
09. Ulla mín, Ulla
10. Flýt þér, drekk út
11. Út hjá Haga
12. Vögguvísa
13. Sofðu Kalli
Um plötuna:
Í gegnum tíðina hefur það verið aðalmarkmið flestra trúbadúra að ná því valdi á list sinni að geta flutt söngljóð Bellmans. Á þessari plötu tekst Bubbi á við þetta stóra verkefni og leysir frábærlega, enda hefur hann verið einn af okkar allrabestu vísnasöngvurum síðustu tvo áratugi. (Skrifað 23. maí 2000).
Ég var svo heppinn að fá að sjá og hlýða á þá Bubba og Guðmund Pétursson gítarleikara flytja efni þessarar plötu á tónleikum á vegum Listahátíðar í Íslensku óperunni þann 22. maí 2000. Þetta voru frábærir tónleikar sem eiga örugglega ekki eftir að líða þeim sem þarna voru úr minni. Synd að hér var aðeins um þessa einu tónleika að ræða því ljóst er að bæði Bubbi og Guðmundur höfðu lagt mikla vinnu í þetta, líf sitt og sál, enda útkoman eftir því. Þessi frábæra plata er "must" fyrir alla sem hafa kunnað að meta Bubba, alla sem kunna að meta góða og vel flutta vísnatónlist og ekki síst fyrir alla sem hafa heillast af heimi Bellmans, eða langar til að kynnast honum. (6.6.2000)