|
Björgvin Halldórsson og fleiri
Íslandslög 4 |
Útgefandi: |
Skífan |
Verð: 2.199,- |
Flokkur: |
CD ÍSL. |
Tilboðsverð: 1.649,-
Bónusklúbbsverð: 1.429,-
|
Vörunúmer:
|
SCD218
|
|
|
Lagalisti:
Um plötuna:
Það líður senn að aldamótum og árþúsundaskiptum. Þegar þessi merku tímamót nálgast er vel við hæfi að leita fanga meðal íslenskra tónhöfunda og textaskálda, enda af miklu að taka. Út er komin geislaplatan Íslandslög 4. Þetta er fjórða platan í röðinni og sér Björgvin Halldórsson um stjórn upptöku líkt og á fyrri Íslandslagaplötum. Það er valinkunnur hópur tónlistarfólks sem kemur við sögu á þessari fjórðu hljómplötu í flokki Íslandslaga og er útkoman öllum til mikils sóma. Fremstur meðal jafningja fer Björgvin Halldórsson sem framleiðir og stýrir þessu verki.
Það er farið fimum höndum um þá 13 söngva sem hér er að finna og Íslandslögin færð í heildrænan búning þótt lögin komi úr ýmsum áttum. Hér er vandað verk á ferðinni og plata þessi á eflaust eftir að verða jafnvinsæl og þær fyrri. Flytjendur á plötunni eru auk Björgvins eru þau: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Bubbi Morthens, Sigríður Beinteinsdóttir, Álftagerðisbræður, BH Kvartettinn, Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræður. Á plötunni eru mörg af þekktari gullkornum íslenskrar tónlistar s.s Undir Dalanna sól, Rósin, Kata rokkar, ofl. Hér gildir hið fornkveðna: "Verkið lofar meistara sinn". (Skrifað í október 1999)
|
Umsagnir
|
|