Árið 1984 hélt Garðar Cortez eftirminnilega tónleika í Austurbæjarbíói. Fyrir einskæra tilviljun voru tónleikarnir hljóðritaðir og því er enn möguleiki fyrir komandi kynslóðir að upplifa einstæða túlkun Garðars á ítölskum antik aríum, ljóðum og söngvum úr ýmsum áttum. Ómissandi útgáfa fyrir alla tónlistarunnendur og áhugamenn um íslenska menningarsögu. (Skrifað 16. desember 1999).