|
SSSól
88/99 |
Útgefandi: |
Íslenskir tónar |
Verð: 999,- |
Flokkur: |
CD ÍSL. |
|
Vörunúmer:
|
IT007
|
|
|
Lagalisti, plata 1:
Lagalisti, plata 2:
Um plötuna:
Það er svo sannarlega kominn tími til að tekin séu saman bestu lög Sólarinnar,en SSSól hefur verið með allra vinsælustu hljómsveitum landsins undanfarinn áratug. Það er þó engin þreytumerki að finna á meðlimum hljómsveitarinnar enda eru fjögur ný lög á þessari tvöföldu safnplötu sem allir sannir rokkarar ættu að næla sér í strax. Á þessarri plötu eru lög eins og Nostalgía, Frelsi, Geta pabbar ekki grátið, Ég verð að fá að skjóta þig , Ég stend á skýi o.fl.
Það var kominn tími til að Sólin smalaði saman á safnplötu öllum smellunum sem þeir hafa verið svo iðnir við að senda frá sér undanfarin tíu ár. Inniheldur einnig nýja lagið, Þú ert ekkert betri en ég. (Skrifað í júlí 1999)
Hljómsveitin Síðan skein sól-SSSól 1988 - 1999
Helgi Björnsson - Söngur Eyjólfur Jóhannsson - Gítarar Ingólfur Sigurðsson - Trommur Hafþór Guðmundsson - Trommur Jakob Smári Magnússon - Bassi Björn Árnason - Bassi Atli Örvarsson - Hljómborð Hrafn Thoroddsen - Hljómborð
|
Umsagnir
Ólafur Björnsson |
|
Ein besta hljómsveit okkar Íslendinga fyrr og síðar, SSSÓL hefur loksins sent frá sér safnplötuna sem lengi hefur verið beðið eftir. Allir þekkja smelli þessara hljómsveitar og það er engum blöðum um það að fletta að þessi plata er skyldueign allra unnenda íslenskrar tónlistar. 4 stjörnur (9.10.1999) |
|
|