Skifan.is

Amma
Verð. ISK. 2.799,-
 Vörulýsing  
Söngvaskáldið Svavar Knútur sendir hér frá sér nýja breiðskífu sem hljóðrituð var á stofutónleikum í október 2010. Á tónleikunum flutti Svavar ýmis lög sem hann hefur tekið ástfóstri við í gegnum tíðina, en plötuna tileinkar hann ömmum sínum þar sem lögin eru flest komin til ára sinna og hafa verið sungin af eldri kynslóðum. Öll lögin nema eitt eru í útsetningum söngvaskáldsins sem leikur ýmist undir á gítar eða ukulele, en í einu lagi kemur píanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson við sögu og í öðru lagi ljá Karítur Íslands raddir sínar til að auka á blæbrigðin. Að öðru leyti er hér um hreinræktaða trúbadúrplötu að ræða og lifandi upptöku. Amma er önnur sólaplata Svavar Knúts. Hin fyrri, Kvöldvaka, kom út vorið 2009. Einnig hefur hann sent frá sér plöturnar I can´t believe it´s happiness og Silent Treatment með hljómsveitinni Hraun. Amma var hljóðrituð í höfuðstöðvum Dimmu, en um upptökur og eftirvinnslu sá Jón Skuggi. Myndir á umslagi teiknaði Dagbjört Lilja Svavarsdóttir, en Högni Sigurþórsson hannaði útlit.